Bláfjöll – hæsta fjallið heitir Vífilsfell – (SH).

Í landi Kópavogs eru mörg fjöll. Þar eru líka víða hólar og hæðir, sem eru lægri en fjöllin.

Það getur verið erfitt að ganga upp á fjöll, en það er líka gaman. Af fjallstoppi er gott útsýni. Í snjó er gaman að renna sér niður brekkurnar.

  • Hvar er Vífilsfell? Hvar er Esja?
  • Hvar er Vatnsendahæð?
  • Hvað heitir sleðabrekkan okkar?
  • Farið upp á háan hól, eða lágt fjall og syngið þetta lag: Upp, upp, upp á fjall…

KENNARAR / LEIÐBEININGAR

  • Horfið í kringum ykkur og athugið hvort þið sjáið fjöll eða hæðir.

  • Veljið ykkur fjall sem er fallegt og málið mynd af því. Af hverju finnst ykkur það fallegt? Eru til ljót fjöll?

  • Vatnsendahæð er sérstaklega nefnd – en þær eru fleiri hæðirnar í Kópavogi, til dæmis: Rjúpnahæð og Nónhæð.
  • Vífilsfell er lengst til vinstri á myndinni.
  • Hafa nemendur gengið á fjall – segja frá.
  • Fara í fjallgönguleik … nemendur finna sína leið til útfærslu.