Fléttur á steini - (SH).
Mikið stækkuð mynd af fléttu. Þörungarnir eru kúlulaga og sveppþræðirnir hríslast um. Nefronus, CC BY-SA 4.0 , via Wikimedia Commons

Algengt er að sjá fléttur vaxa á steinum. Þær eru sérkennilegar. Um er að ræða tvær lífverur sem lifa saman og geta ekki verið án hvor annarrar, eru í sambýli. Þetta eru sveppir og þörungar. Þörungur getur ljóstillífað og þannig skaffa þeir bæði sér og sveppunum næringu. Sveppirnir ná í vatn og steinefni bæði fyrir sig og þörungana.

Fléttur eru mjög viðkvæmar fyrir loftmengun. Mörg dæmi eru um að vissar tegundir hafi horfið af stórum svæðum umhverfis verksmiðjur.

  1. Rannsakið fléttur á grjóti og klettum í Kópavogi.
    • Hvar á grjótinu eru þær mest áberandi?
    • Hvernig eru flétturnar á litinn?
    • Hvernig er áferðin?
    • Skoðið flétturnar með stækkunargleri, í víðsjá eða með smásjá.
  2. Vinnið myndlistarverk byggt á fléttum – frjáls tækni!
  3. Lesið um skófir í þjóðsögunni Kerling vill hafa nokkuð fyrir snúð sinn.