Við sjóinn eru oft margir fuglar enda er þar fjölbreytt og mikið æti fyrir fjölda tegunda.

Fjörur Kópavogs eru skjólsælar. Kársnes er innnes, sem þýðir að það er ekki fyrir opnu hafi heldur inni í firði eða flóa.

Að auki má nefna að bæði Fossvogs- og Kópavogslækur bera með sér yl til strandar sem gerir líf fuglanna (að minnsta kosti sumra) notalegra.

Hér er langur listi yfir fugla sem hafa sést í fjörum Kópavogs.

  • æðarfugl 
  • tjaldur
  • sandlóa (vor og haust)
  • heiðlóa (vor og haust)
  • stelkur
  • lóuþræll
  • sendlingur (mest að vetrarlagi)
  • kría
  • máfar (þar á meðal svartbakur, sílamáfur og hettumáfur)
  • tildra
  • rauðbrystingur
  • stari
  • margæs
  • grágæs
  • spói
  • rauðhöfðaönd
  • hávella
  • stokkönd
  • fálki (sést örsjaldan)
Fylgst með fuglum - (SSk).
Listaverk eftir Sigríði Rún. Hún er flínk að teikna fugla. (SR).

Lærið um fuglana sem þið sjáið í fjörunni og við hana:

  1. Kannski getið þið skipt með ykkur fuglunum og kynnt ykkur einn sérstaklega og sagt frá honum, eða safnað saman upplýsingum frá öllum í nemendahópnum og birt í ykkar eigin fuglabók.

  2. Fylgist vel með fuglunum. Hvar nákvæmlega eru þeir og hvað eru þeir að gera?

    • Gaman er að fylgjast með þegar fuglar finna sér eitthvað í gogginn til að éta, þegar þeir gera sér hreiður, finna maka og æxlast, hugsa um ungana sína, hópa sig og svo framvegis…

  3. Reynið að greina fuglana til tegundar og lesið um þá í fuglabók eða á fuglavefnum.

  4. Þegar fjarar út er oft mest um fugla – hvers vegna?

  5. Gerið listaverk sem heitir Fuglinn í fjörunni. Ef vel tekst til ættuð þið að senda mynd sem gæti birst á vefnum.