Í Kópavogi eru víða tré. Sum eru mjög gömul og orðin stór. Trén mynda skjól og þau eru góð fyrir andrúmsloftið.

Það má klifra í stórum og sterkum trjám, eða bara sitja hjá þeim. Þau lykta vel í rigningu.

Lauftré eru með laufblöð og barrtré eru með barrnálar. Sumar barrnálar stinga. Á haustin verða laufin litrík og falla svo af trjánum.

Í görðum eru víða trjárunnar.

Trjárunni – (SH).

Fuglar í skógi

Skógarþröstur - (JBH).

Þessi fallegi skógarþröstur sækir í trjálundi. Hann getur sungið mjög fallega, sérstaklega á vorin.

Við getum séð fleiri fugla í skóginum. Til að þeir verði síður hræddir þurfum við að fara hægt og hafa lágt. Við þurfum líka að hlusta eftir þeim til að sjá þá.

Lerkitréð

Tré ársins 2005 - (Kópavogsbær).

Þetta fína lerkitré vex í Kópavogsdal. Það var pínulítið þegar það var gróðursett við sumarbústað árið 1936. Hvað eru mörg ár síðan?

Tréð stækkaði, börnin í sumarbústaðnum urðu fullorðin, byggð voru hús allt í kring og vegir voru lagðir.

Sumarbústaðurinn þurfti á endanum að fara, en eftir stóð lerkitréð. Garðyrkjustjóri Kópavogs lét laga til í kringum tréð og snyrta það. Þá varð tréð svo roggið að það fékk verðlaun: Tré ársins 2005!

Hvað ætli það verði gamalt?

Þrestir og starar eru algengir fuglar í Kópavogi. Stundum baða þeir sig í pollum (líka drullupollum!) og sulla. Það er svolítið fyndið.

Þeim finnst gott að vera í litlum hópum. Á nóttunni safnast þeir saman. Þá þurfa þeir ekki að vera hræddir og verður kannski ekki mjög kalt.

Stari - (JBH).

KENNARAR / FULLORÐNIR

Á vettvangi

  1. Veljið ykkur tré og lýsið því /teiknið. Hvernig er það í laginu? Skoðið laufin /barrið. Sjáið þið köngla (á barrtrjánum) og rekla (á lauftrjám)? Er lykt af trénu? Finnið áferðina á berkinum.
  2. Flokkið tré sem þið sjái í barrtré og lauftré. Jólatré eru barrtré!
  3. Hlustið á trén. Heyrist eitthvað?
  4. Verkefni bundin við mars til maí:
    Takið nokkrar afklipptar trjágreinar lauftrés inn í hús, setjið í blómavasa með vatni og fylgist vel með næstu dagana.
  5. Þurrka (haust-)lauf og nota í myndgerð.
  6. Horfa sérstaklega eftir fuglum í skógi. Fylgjast með þeim. Fara rólega og hvíslast.

Fuglarnir

Oft er talað um skógarþresti sem þresti.

Skógarþrestir og starar eru oft í trjám en einnig í kringum mannabústaði og á túnum. Stari gefur frá sér fjölbreytt hljóð og getur hermt eftir öðrum fuglum.

Aðrir fuglar í skógi: auðnutittlingur, svartþröstur, músarrindill og glókollur.

Smádýr

Oft má sjá smádýr í trjánum. Á lauftrjám er algengt að sjá lirfur sem éta laufblöð, eða púpur í upprúlluðu laufi. Á barrtrjám eru líka lífverur og eru sumar hálfgerð meindýr eins og til dæmis sitkalús á sitkagreni. Jarðvegsdýr eru gjarnan á neðsta hluta stofnsins.