Almenn færsla, Fólk og náttúra, Lífríki

Hrafn og Hrefna komin

Sumar fréttir eru árvissar. Giljagaur kemur 13. desember og krummaparið býr um sig í laupnum sínum hjá Bykó á Selfossi og þaðan hefur verið bein útsending mörg vor í röð.

Líklega er bara best að krækja í ársgamla frétt því hún er í fullu gildi. Smella á fréttina! 

Því kvíslaði lítill fugl (í gær) að hrafnar væru að byggja sér hreiður í turninum á Smáralind. Ef þið viljið skoða það þurfið þið að hafa kíki.

Ætli þetta sé alltaf sömu fuglarnir, Hrafn og Hrefna sem búa í hreiðrinu?