Fullir af reyniberjum!
Um þessar mundir eru fuglarnir, einkum skógarþrestir og starar, áberandi í reynitrjánum. Sjá má og heyra stóra hópa í trjám þar sem mikið er um ber.
Víða eru reynitré í Kópavogi. Á þeim eru reyniber sem er mikilvæg fæða fyrir fuglana. Skógarþrestirnir eru flestir farfuglar og tína þeir í sig ber af miklum móð til að safna orku fyrir ferð sína til vetrarheimkynnana sem eru aðallega á Bretlandseyjum, en einnig í Frakklandi, Portúgal og Spáni. Eflaust eru margir þrastanna nú þegar farnir, en ennþá eru samt stórir hópar hér enn á stjái. Hluti skógarþrastarstofnsins heldur sig svo á Íslandi yfir veturinn, einkum á höfuðborgarsvæðinu og sunnanlands.
Stararnir eru aftur á móti staðfuglar og hafa lagast að aðstæðunum á Íslandi. Þeir eru reyndar mikið fyrir þéttbýli (lesa nánar).
Stundum er talað um reyniber sem fuglaber.
Alkóhól
Fólk hefur skynjað æsing í fuglunum á haustin. Þeir eru í raun að berjast um berin og eru árásargjarnir, hafa hátt, garga fremur en syngja, fljúga hratt og lágt og eru stundum svolítið stefnulausir.
Í rannsóknum, bæði íslenskum og erlendum, hefur verið sýnt fram á að í berjunum myndist alkóhól er líður á haustið. Líklega nær magn alkóhóls í berjunum að verða nógu mikið til þess að fuglarnir verði ölvaðir. Það er þekkt erlendis og ef við fylgjumst með atferli fuglanna hérlendis má álykta að þeir séu það sömuleiðis, sumir að minnsta kosti.
- Kynnið ykkur reynitré. Hvað einkennir þau?
- Fylgist með fuglunum í trjánum og hlustið á þá. Fylgist með þeim fljúga.
KENNARAR
Alkóhól í ylli- og reyniberjum – grein í Náttúrufræðingnum eftir Magnús H. Magnússon og Kristínu Magnúsdóttur
