Dagur íslenskrar náttúru er 16. september
Hvað einkennir náttúru Íslands?
Hér fyrir neðan eru atriði til umhugsunar sem hjálpa ykkur að svara spurningunni.
Hugsið líka um lífverurnar í öllu þessu samhengi.
Ræðið saman um þessi atriði og punktið hjá ykkur það sem kemur í hugann. Þið þurfið að hugsa málin vel. Það er kannski meira þarna á bakvið en þið haldið í fyrstu.
(Höfundur vefsins mun birta sína punkta hér síðar! (20/9))
Af hverju er haldið upp á Dag íslenskrar náttúru?
Ómar Ragnarsson
Dagur íslenskrar náttúru er á afmælisdegi Ómars Ragnarssonar, sem fæddist 16. september 1940. Auk þess að hafa verið skemmtikraftur og sjónvarpsmaður, og gert fjölda þátta um náttúruna, hefur hann lengi barist fyrir verndun íslenskrar náttúru.
Lögin hér að neðan tengjast sveit og óbyggðum!





