Almenn færsla, Lífríki, Veður

Haustdagar

Með mjallahvítar húfur! - (SH).

Sumri hallar

Sumri hallar, hausta fer,
heyri snjallir ýtar,
hafa fjallahnjúkarnir
húfur mjallahvítar.

Girnast allar elfur skjól
undir mjallar þaki,
þorir varla‘ að sýna sól
sig að fjallabaki.

Verður svalt því veðri‘ er breytt,
vina eins og geðið:
þar sem allt var áður heitt
er nú kalt og freðið.

Þjóðvísa og þjóðlag

sumri hallar = það líður á sumarið
ýtar = menn (fólk)
girnast = langa í
elfur = fleirtala orðsins elfa sem þýðir á
geð = skap
freðið = frosið

Fallin lauf - (SH).

Hér eru færslur frá síðasta ári sem fjalla um haustliti og hvernig plönturnar búa sig undir veturinn. Þessar færslur eru í fullu gildi og eitt er víst að hægt er að njóta haustsins ár eftir ár og vinna margs konar verkefni.