Almenn færsla, Veður

Vorjafndægur í dag

Í dag, 20. mars, eru vorjafndægur. Það er sú stund þegar sól er beint yfir miðbaug Jarðar. Alls staðar í heiminum eru dagur og nótt jafnlöng núna. Héðan í frá lengir daginn á norðurhveli alveg fram á mitt sumar. Á Íslandi er ekkert náttmyrkur um hásumarið!

Þótt enn sé kuldalegt má víða sjá merki vorkomu í náttúrunni. Hér eru dæmi: Lóan er komin, svartþrestir eru farnir að para sig og krókusar að teygja sig upp úr moldinni. Pottaplöntur innandyra hafa brugðist við aukinni birtu og ný lauf og sprotar birtast.

Á myndinni hér fyrir neðan sjáum við hvernig sólin skín á Jörðina þegar eru jafndægur og sólstöður.

Hvernig getum við haldið upp á daginn?

vorjafndægur

sumarsólstöður

vetrarsólstöður / vetrarsólhvörf

haustjafndægur