Nóvember er mánuður nægjusemi. Ef við erum nægjusöm merkir það að við erum ánægð með það sem við höfum og þurfum ekki alltaf meira. Okkur þykir vænt um dótið okkar og förum vel með það. Okkur líður vel – nægjusemi vinnur nefnilega gegn óánægju. Auðvitað er ýmislegt sem okkur langar í og sumt er nauðsynlegt að eiga.
En af hverju að tala um þetta á vef um náttúruna? Jú, málið tengist náttúruauðlindum. Allir hlutir eru jú búnir til úr einhverju úr náttúrunni. Náttúruauðlindir eru ekki endalausar, framleiðsla hluta getur verið óumhverfisvæn og flutningur hlutanna um langan veg felur í sér losun gróðurhúsalofttegunda.
Við ættum því alltaf að hugsa hvort við þurfum nauðsynlega á hlutum að halda áður en þeir eru keyptir.
- Leggjum áherslu á það sem við höfum en ekki á það sem vantar eða það sem okkur er talin trú um að okkur vanti! Forðumst auglýsingar sem vekja oft nýjar þarfir.
- Temjum okkur þakklæti og virðingu fyrir því sem við höfum.
- Hættum að bera okkur saman við aðra.
- Með nægjusemi setur maður sér markmið sem tengjast framförum á andlegum sviðum en ekki efnislegum.
– Landvernd –
Þið getið lesið nánar um málið hér á vefnum auðlindir og sjálfbærni.
Einnig hér (fyrir þau yngstu).
- Farið yfir atriðin frá Landvernd og ræðið þau.
- Komið með dæmi úr raunveruleikanum sem tengjast þeim.