Almenn færsla, Lífríki, Veður

Haustlitir í hámarki

Trén undirbúa sig fyrir veturinn og þau vissu fyrir þó nokkru síðan að von væri á honum. Þau búa nefnilega yfir innri klukku. Styttri dagar og lengri nætur gáfu þeim merki.
Trén safna forða sínum á öruggan stað, síðan falla laufin.
Litarefnin hætta að myndast í laufunum, fyrst brotnar blaðgrænan niður og þá taka önnur litarefni laufanna völdin. Þá birtast haustlitir.
Ef lauf er slitið af tré að sumri myndast þar lítið gat. Það er slæmt fyrir tréð því þar kemst að kuldi og raki. Á haustin grær eiginlega upp í þessi litlu göt. Við það losnar um laufin og lítið þarf til þess að þau falli af greinunum.
  • Það er gaman að gera listaverk úr laufblöðum haustsins. Þið hafið eflaust gert það oft áður og alveg frá því þið voruð í leikskóla. Hugsið upp einhverja nýja leið í listsköpun ykkar.
  • Skoðið vel mismunandi laufblöð og berið saman. Hvernig eru jaðrarnir? Hvernig eru þau á litinn? Hvernig er áferðin undir og ofan á?
  • Getið þið greint trén og laufblöðin til tegundar?
  • Hvað verður um öll laufin sem falla á jörðina?

Blaðgræna er græna efnið sem við sjáum í plöntum. Hún er mikilvæg í ljóstillífun.

Rauður litur tekur yfir - (SH).