Almenn færsla, Fólk og náttúra, Lífríki, Umhverfismál

Krútt í Kópavogi

Voruð þið búin að heyra af köngulónni sem kom hingað til lands, nánar tiltekið í Kópavog, með eplum?

Lesið frásögnina í DV.

Fjölskylda í Kópavogi hélt köngulónni í sérstökum kassa og slepptu henni ekki út í náttúruna. Það var rétt hjá þeim. Erlendar lífverur, stórar og smáar, geta nefnilega valdið usla í lífríkinu og orðið ágengar. Um það er fjallað hér.

Það hefur eflaust orðið uppi fótur og fit þegar krúttlega köngulóin eignaðist afkvæmi.

Myndin er af fb-síðunni Heimur smádýranna

Köngulær eru með átta fætur.