Almenn færsla, Fólk og náttúra

Jón úr Vör og grunnskólaskáldin

Ljóðstafur Jóns úr Vör

Skáldið Jón úr Vör - (MEKÓ)

Vala Hauksdóttir fékk verðlaunin 2024.

Verk að finna

Hrífuskaftsflís
í hengibrúnni milli bendifingurs og þumals.

Útsaumsnál
undir baugfingursnögl.

Skeljasandur
í hælsæri.

Hrossafælir
sem skýst með þyt undan þúfu

fall

að missa andann –
sortna fyrir augum
í lyngi.

Sælan er skortur
á öllu nema tíma
til verkja.

Hamingjan
er sigg.

Vala Hauksdóttir

Það er alltaf gaman að fylgjast með árlegri ljóðahátíð í Kópavogi sem tengd er við skáldið Jón úr Vör. Honum þótti örugglega vænt um Kópavog og gerði ýmislegt fyrir bæinn sinn. Hann stofnaði til dæmis lestrarfélag í Kópavogi og hvatti til að Bókasafn Kópavogs yrði stofnað. Þar var hann bókavörður.

Verðlaunagripurinn
Sá sem fær 1. verðlaun í fullorðinssamkeppni ljóðahátíðarinnar hlýtur Ljóðstaf Jóns úr Vör. Talað er um höfuðstafi og stuðla í ljóðum sem ljóðstafi. Annars gekk Jón úr Vör við staf lengi vel þegar hann varð gamall. Stafurinn varð eiginlega partur af honum.  

Lesið ljóð Völu sem fékk Ljóðstafinn.

  • Hún minnist á staði á líkamanum. Hvaða staðir eru það? Hvað kallið þið fingurna?
  • Eruð þið með sigg? Þekkið þið einhvern með sigg?
  • Ætli hrossafælir sé skáldlegt heiti á hrossagauk – getur það verið?
  • Hafið þið misst andann – til dæmis við það að fá bolta í magann?
  • Af hverju ætli hamingjan sé sigg?

Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs

Í tengslum við hátíðina fer líka fram Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs. Það eru sannarlega mörg efni í skáld í Kópavogi.

Þessi ljóð hlutu viðurkenningu:

Lesið ljóð grunnskólanemendanna vel og vinnið með þau:

  1. Sjáið fyrir ykkur umhverfi ljóðanna. Er þetta villt náttúra eða manngert umhverfi? Þið gætuð valið eitt ljóð og gert mynd við það.
  2. Hvaða lífverur eru sérstaklega nefndar og hvert er samhengið?
  3. Hvaða önnur náttúrufyrirbæri eru nefnd? Hvað er sagt um þau, eða hvert er hlutverk þeirra í ljóðinu?
  4. Í hvaða ljóðum er talað um fólk og kannski tilfinningar? Fólk tilheyrir jú náttúrunni.
  5. Eru ljóðin falleg? Getið þið útskýrt af hverju ykkur finnst það.

Fyrstu verðlaun

APPELSÍNUR

Ég lærði aldrei að afhýða appelsínurnar mínar
mér var aldrei kennt það
þú gerðir það fyrir mig
Ég var vanur að horfa á þig frá eldhúsborðinu þegar þú afhýddir þær

skarst þær í sneiðar
og deildir þeim með öðrum
ég var aldrei hrifnn af eplum, né ferskjum, ekki einu sinni perum
bara appelsínum
þú varst sem appelsína lífs míns
þú afhýddir þykka húð þína
sýndi mér innra með þér
ljúfleika þinn og ást til mín
liturinn þinn var hlýr og aðlaðandi
ég afhýði mínar eigin appelsínur í dag

Alexander Aron Jörgensson
Lindaskóla, 10. bekk

 

Önnur verðlaun

ÉG OG HÚN

með fjölskyldunni
um mosi vaxið hraunið
í mildu haustveðrinu.

Ég horfi á tunglið
speglast í vatninu,
og tunglið horfir til baka á mig.

Hún gengur ein
um myrkar húsarústirnar,
í hljóðlátu haustveðrinu.

Hún horfir á sama tunglið lýsa
upp staðinn þar sem áður stóð heimili.

Tunglið horfir huggandi til baka.

Inga Bríet Valberg
Snælandsskóla, 5. bekk

 

Þriðju verðlaun

MJÖLL, FÖNN OG DRÍFA

Mjöll, Fönn og Drífa,
systur allar þrjár.
Hver og ein einn vetur,
En hver og ein sérstök.

Mjöll sem vakir yfr haustinu,
kemur oft óboðin.
Sturtar yfr alla,
bómullarhnoðrum eða golfkúlum.

Fönn sem kallar á sveinana þrettán hver jól,
en mætir ekki alltaf og hátíð verður rauð.
Hún er kát og spræk eins og enska orðið,
yfrgefur okkur í janúar og býður systur í heimsókn.

Drífa kemur snöggt og skyndilega,
hún ýtir þér út á tún með vinkonu vind.
Harkan endist að vori,
eftir það ertu laus.

Systurnar eru þrjár svo mikið er víst,
eru ekki allt árið en reyna það enn.
Einu dýrin sem sjá þær allt árið,
eru fuglarnir sem Jónas nefndi.

Sigurlín Viðarsdóttir
Lindaskóla, 10. bekk

 

Eftirfarandi ljóð fengu viðurkenningu

AÐ VERA ÉG

Að vera ég
er eins og að ferðast í gegnum óljósan skóg.
Ég er unglingur
og það er undarleg blanda af skoðunum og tilfnningum sem mér fylgir.
Ég er enn að finna leiðina mína
en það er ekki alltaf einfalt.
Ég reyni að skoða heiminn með nýjum augum
og læra af öllu sem ég upplifi.
Ég er ekki alvöru þáttur, heldur er ég enn að mynda söguna mína,
og það er ágætt.
Ég er eins og teningur með nokkrar hliðar, þar sem hver hlið er annar persónuleiki.
Á einni hliðinni er ég ánægður með allt
en á annarri hliðinni get ég verið frekar afbrigðilegur.
Ég lít á framtíðina með hræðslu
en líka með spenningi
og ég vona að ég finni mína eigin leið til að blómstra í þessum nýja heimi sem er að verða
ég.
Ég er einfaldlega unglingur
og það er nóg fyrir mig.

Ríkharður Óli Brynjarsson
Lindaskóla, 10. bekk

 

BATMANN

Vöktunarnætur,
vörður bjarta þjóðar,
reiður ógnar.

Í myrkri nóttu,
skuggarnir dansa leik,
brotið burt úr gæfu.

Í fjarska skýin
riddarinn bíður
batnandi brotnar.

Í skuggaleik náttúrunnar dansar birtan sterk,
batnandi hjartað, vörður bjarta þjóðar,
riddarinn bíður í brotnu burt úr gæfuferli.

Angelo Mikael Korale Arachchige
Lindaskóla, 9. bekk

 

FUGLALJÓÐ

Fuglar sem tísta og fuglar sem öskra
Fuglar sem fljúga og fuglar sem labba
Fuglar sem synda og fuglar sem segja krakra
Fuglar litlir og stórir fuglar þykkir og mjóir

Allar tegundir og litir
Allir fuglar saman hér
Allar fjaðrir allir fuglar
Allir ungar og egg

Evelina Sóley Arthur
Kárnesskóla, 7. bekk

 

SUMARIÐ

Sumarfríið, ferðirnar
Sólin skín um allan stað
Sundferðir og ístúrar
Lautarferðir, minningar

Strandirnar og garðarnir
Bústaðir og vinirnir
Litlu blómin, gamanið
Enginn skóli, saman við

Elsa Hlín Sigurðardóttir
Lindaskóla, 9. bekk

 

Í ÖÐRUM HEIMI

í öðrum heimi fylgir kötturinn minn enn eftir mér og bragðið af kalda ísteinu situr enn á
tungunni minni á heitum sumardegi
í öðrum heimi hvílir rúmið mitt enn í sama horninu, teikningarnar mínar eru enn hengdar
upp á alla fleti á veggjunum mínum og gólfð mitt er stráð af leikföngum
í öðrum heimi fæ ég enn pabba til að bera mig í rúmið ef ég sofna í bílnum
í öðrum heimi bakar öll fjölskyldan mín enn piparkökur saman um jólin
í öðrum heimi er amma enn að kenna mér að synda
í öðrum heimi kyssir mamma enn á öll meiðslin mín
í öðrum heimi vakna ég enn á hverjum laugardagsmorgni til að horfa á teiknimyndir
í öðrum heimi hvíli ég enn í örmum móður minnar á meðan hún kennir mér að lesa,
augnlok mín þung af þreytu
í öðrum heimi laumast ég enn inn í svefnherbergi foreldra minna á næturnar til að sofa á milli þeirra
í öðrum heimi er ég enn sex ára

Alexander Aron Jörgensson
Lindaskóla, 10. bekk

 

ÚTI

Úti er kalt.
Sólin skín á frosið grasið.
Krakkar leika sér úti.
Trén hafa misst öll laufblöðin sín.

Jólin eru að koma.
Það rigndi í nótt.
Allir vatnsdroparnir eru orðnir að grýlukertum.
Margt hefur breyst úti.
En inni er þetta bara venjulegur skóladagur.

Sóldís Anahita Shahsafdari
Álfhólsskóla, 6. bekk