Almenn færsla, Sögusviðið

Gos!

Það er sérstakt að upplifa eldgos. Þá sjáum við hvernig nýtt land verður til og hvernig nýtt landslag fæðist. Nú gýs í Meradölum, á svipuðum slóðum og gaus á síðasta ári.

Meradalir eru á Reykjanesskaga, sem er eldvirkt svæði. Víða má sjá hraun, gíga og merki eldvirkni frá fyrri tímum á Reykjanesskaga. Kópavogsbær á mikið land og stór hluti þess tilheyrir einmitt Reykjanesskaga. Við þurfum þó ekki að óttast að hraun renni í þéttbýli Kópavogs.

Vísindamenn telja að tímabil eldsumbrota sé að hefjast á Reykjanesskaga.  Fyrir gosið í Geldingadölum hafði ekki gosið á Reykjanesskaga síðan árið 1240!

Fylgist með umfjöllun um gosið í fjölmiðlum.

      • Við hverja er talað?
      • Hvað kemur fram?
Við upphaf goss í Meradölum, 3. ágúst 2022 - (Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir hjá RÚV).

VARÚÐ! Eldgos eru hættuleg. 

Helstu hættur við hraungos líkt og í Meradölum:

Hraunið er heitt. Fólk má ekki fara of nálægt og ekki borgar sig að tipla á hrauni sem virðist storknað – það gæti verið logandi kvika rétt fyrir neðan.

Eiturgufur fylgja eldgosum. Þær sjást illa og eru almennt lyktarlausar. Eiturefni þessi setjast í lægðir í nágrenni gjósandi eldstöðva og geta valdið köfnun manna og dýra.

FÓLK Á ALLTAF AÐ FYLGJA LEIÐBEININGUM ALMANNAVARNA OG BJÖRGUNARSVEITA