Almenn færsla, Himingeimur

Sólmyrkvinn

Það er skrýtið að hugsa sér að allt verði dimmt um hábjartan dag. Það gerist við almyrkva sólar. Fólk sem upplifir almyrkva gleymir því seint. Eruð þið ekki að verða spennt?

Sólmyrkvinn sem verður 12. ágúst 2026 sést um allt land, en almyrkvi verður einungis sýnilegur vestast á landinu, meðal annars í Kópavogi. Það er einstakur atburður.

Síðast varð almyrkvi á Íslandi 30. júní 1954 og sást hann syðst á landinu. Síðasti almyrkvi sem sást frá höfuðborgarsvæðinu varð 17. júní 1433! Næsti almyrkvi á Íslandi verður árið 2196. Hvernig ætli verði umhorfs hér þá?

Í skýjuðu veðri getum við ekki séð hvernig tunglið gengur fyrir sólina – en við sjáum myrkrið!

Í himingeimnum

Sólin er fastastjarna en Jörðin er reikistjarna sem snýst í kringum sólina. Það tekur hana eitt ár að fara hringinn. Tunglið snýst svo í kringum Jörðina og tekur það mánuð.

Þegar tunglið er á milli sólar og Jarðar er talað um nýtt tungl. Á nýju tungli og þegar staðsetning tunglsins er þannig að skugginn af því fellur á Jörðina geta íbúarnir þar (ásamt gestum!) upplifað sólmyrkva.

Skugginn af tunglinu 12. 8. 2026. Á skyggða svæðinu verður almyrkvi. (https://solmyrkvi2026.is/)
Almyrkvi. Tunglið skyggir fullkomlega á sólina en við sjáum sólkórónuna - lofthjúp sólar. (Myndin er af vef Vegagerðarinnar.)
Deildarmyrkvi.

Þegar tunglið skyggir alveg á sólina, séð frá Jörðu, er almyrkvi. Þegar tunglið skyggir að hluta til á hana er talað um deildarmyrkva.

Nauðsynlegt er að hafa örugg hlífðargleraugu þegar fylgst er með sólmyrkva. Þegar horft er á sólina og deildarmyrkva verður að hafa gleraugun á sér – en á meðan almyrkvinn varir skal taka þau niður til að geta notið þess að sjá sólkórónuna.

KENNARAR / FULLORÐNIR

Fræðigrein

Grein í Náttúrufræðingnum: Sólmyrkvar á Íslandi

Jörð – jörð

Mörgum finnst skrýtið að skrifa Jörð með stórum staf. Í útgefnu námsefni hefur það verið víða gert. Í bókinni Sjálfbærni – ritröð um grunnþætti menntunar eftir Sigrúnu Helgadóttur er þetta rökstutt. LESA

  1. Undirbúið ykkur fyrir sólmyrkvann með því að lesa um hann og skoða myndir, kort og skýringarmyndir.
  2. Verið viss um að eiga tiltæk sólmyrkvagleraugu.
  3. Ákveðið stað til að vera á og komið ykkur þangað með góðum fyrirvara. Bílaumferð getur verið mjög mikil og hæg.
  4. Að skrifa niður lýsingu og frásögn af upplifun ykkar af þessum einstaka viðburði, hjálpar ykkur að muna og gefur öðrum, kannski afkomendum ykkar, tækifæri til að setja sig í ykkar spor.
  5. Reiknið út hvað eru mörg ár þangað til næsti almyrkvi verður á Íslandi.