Ungar
Nú eru ungarnir farnir að skríða úr eggi. Unginn á myndinni er rjúpuungi. Ekki er líklegt að sjá rjúpu í þéttbýli Kópavogs en þegar kemur út fyrir bæinn verða líkurnar meiri. Líkt og foreldrarnir eru litlu ungarnir í felulitum. Til að fela sig enn betur nota þeir líka þá aðferð að vera grafkyrrir þegar hætta er á ferðum – þá verður erfiðara að koma auga á þá. Annars verða rjúpuungar fljótt fleygir, aðeins um tíu daga gamlir, og það hjálpar þeim vissulega að flýja hætturnar. Fjöldi eggja í rjúpuhreiðri er 10-12!
Vefmyndavél er hjá hrafnslaupi (=hreiðri hrafns) á Selfossi. Þar eru enn ungar (8/6)! – SKOÐA.
Þið eigið eflaust eftir að sjá unga í vor og sumar.
Fuglaskoðun
Áhugavert er að fylgjast með fuglunum um varptímann og hjá sumum tegundum er áberandi hvernig þeir helga sér óðal og verja það.
Ekki er síður skemmtilegt að fylgjast með fjölskyldulífi fuglanna og hvernig þeir hugsanlega skiptast á að liggja á eða bera mat í ungana.
Einnig er gaman að fylgjast með illa fleygum ungum æfa sig.
Ungar ólíkra tegunda, eru misvel þroskaðir þegar þeir koma úr eggi, sumir eru ófiðraðir, aðrir eru fiðraðir og fara strax á stjá.
Hafið í huga:
- Ef þið sjáið unga, t.d. skógarþrastarunga, á jörðu niðri og illa fleygan skulið þið láta hann eiga sig. Foreldrarnir eru væntanlega einhvers staðar í nágrenninu og hafa auga með þeim litla.
- Finnið þið hreiður ættuð þið að skoða það í miklum rólegheitum og ekki snerta neitt. Þið ættuð heldur ekki að vera alltaf að skoða hreiðrið heldur heimsækja það stöku sinnum og í stuttan tíma í hvert sinn. Mikil umferð fólks við hreiður getur orðið til að fuglarnir yfirgefi hreiðrið.
- Ef hreiður finnast í vegkanti eða túnum fyrir slátt má auka líkurnar á að eggin klekist (=ungi skríði úr egginu) með því að fara alltaf varlega og merkja hreiðrin, t.d. með steinum eða priki, svo hægt sé að forðast að valda þeim tjóni.
Samkvæmt Fuglavernd draga kattakragar eitthvað úr árangri katta við veiðar, en langbest er að halda þeim inni. Hundar geta sömuleiðis truflað fuglana og því er mælt með að hafa þá í taumi.
Hreiðrið mitt
Þér frjálst er að sjá, hve ég bólið mitt bjó,
ef börnin mín smáu þú lætur í ró.
Þú manst, að þau eiga sér móður.
Og ef að þau lifa, þau syngja þér söng
um sumarið blíða og vorkvöldin löng.
Þú gerir það, vinur minn góður.
Þorsteinn Erlingsson (1858-1914)
- Hafið þið séð unga? Segið frá!
- Reynið að ímynda ykkur hvernig andarungi sér umhverfi sitt. Lýsið því!
- Reynið að setja ykkur í spor fullorðinna fugla sem þurfa að liggja á. Þið getið kynnt ykkur hvað ólíkar tegundir liggja lengi á eggjum á Fuglavefnum. Þar má líka sjá hversu mörg eggin eru.
- Hafið augun opin og fylgist með fuglum um varptímann. Hvað sjáið þið?
