Dagur íslenskrar tungu
Fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember, er Dagur íslenskrar tungu.
Jónas Hallgrímsson (1807-1845) var skáld en líka náttúrufræðingur. Það er góð blanda. Hann smíðaði mörg nýyrði (=ný orð) og mörg þeirra tengjast áhugamálum skáldsins. Jónas fæddist á Hrauni í Öxnadal og ólst upp í dalnum. Þar er einstaklega fallegt og fjölbreytt náttúra. Haldið þið að það hafi kannski haft áhrif á þroska hans, líf og starf?
Myndbandið hér fyrir neðan sýnir sveitina hans Jónasar og kunnugir geta séð bæinn Hraun.
- Á SPORBAUG – nýyrði Jónasar Hallgrímssonar (2022) – góð bók og skemmtilega myndskreytt.
- Áhugaverður vefur um Jónas Hallgrímsson.
Finnið MÖRG orð yfir það sem við getum séð í íslenskri náttúru og skrifið hvert þeirra á miða eða lítið spjald. Orðin geta bæði verið nafnorð og lýsingarorð – en sleppið örnefnum.
Gott er að fara út til að horfa í kringum sig en einnig ættuð þið að láta hugann reika út fyrir þéttbýlið.
Skoðið nýyrði Jónasar, mörg þeirra tengjast náttúrunni.
Þegar þið eruð komin með hrúgu af orðum er hægt að vinna með þau á ýmsan hátt.
Hvað dettur ykkur í hug?
Hvar á landinu er Öxnadalur?
