Almenn færsla

Vetrarfrí framundan…

Hvert eigum við að fara? - (Teikning: Freydís Kristjánsdóttir).

Nú styttist í vetrarfrí. Hvernig væri að heimsækja áhugaverða staði í Kópavogi í fríinu. Þið getið valið áfangastað hér á vefnum og lesið um hann undir STAÐIR.

Önnur hugmynd er að fara í Náttúrufræðistofuna og skoða sýninguna þar eða taka þátt í spennandi viðburðum:

Fuglateiknismiðja með Rán Flygenring

27. október kl. 11-13

Mynd- og rithöfundurinn Rán Flygenring býður fjölskyldum upp á ólíkar furðufuglateikniæfingar sem virkja ímyndunaraflið og teiknivöðvana. Þátttakendur fræðast um fugla í gegnum snarpar og skapandi stöðvaþrautir. Engrar teikni- né fuglakunnáttu er þörf til að taka þátt!

Hlynur Steinsson, líffræðingur, verður á staðnum og býður upp á fræðslu um fugla á Náttúrufræðistofu fyrir börn á öllum aldri.

Origami, kjaftagelgjur og lífljómun

28. október kl. 11-13

Kjaftagelgjur eru ófrýnilegar en heillandi skepnur! Þær tilheyra samnefndum ættbálki djúpsjávarfiska sem hafa aðlagast eilífðarmyrkri hafdjúpanna á einstakan máta. Ekki aðeins með aðlagaðri sjón, heldur eiga þær sameiginlegt að bera eins konar veiðistöng með ljósi á endanum sem gerir þeim hægara um vik við fæðuöflun. En hvaðan kemur ljósið? Lífljómun! Lífljómun er þegar lífvera framleiðir og gefur frá sér ljós.

Boðið verður upp á fræðslu um þessar mögnuðu verur og fiskarnir lúsífer og sædjöfull verða skoðaðir. Síðan fá gestir tækifæri til að búa til eigin sjálflýsandi kjaftagelgjur úr origami.

Ránfugl og Rán! - (myndirnar eru fengnar af facebook-síðu Náttúrufræðistofu Kópavogs).
Lýsandi fiskur - (myndin er fengin af facebook-síðu Náttúrufræðistofu Kópavogs).

Góða skemmtun í vetrarfríinu! 

Engin ástæða er til að láta sér leiðast.