Hrafnahjón hafa verpt undir þakskegginu á versluninni BYKÓ á Selfossi. Hægt er að fylgjast með fjölskyldulífinu í beinni útsendingu hvenær sem er á meðan fjölskyldan heldur sig við hreiðrið. Þau heita víst Hrefna og Hrafn foreldrarnir, en það er spurning hvaða nöfn ungarnir fá.
- Skoðið vel hvaða efni er í hreiðrinu. Hreiður hrafns er kallað laupur.
- Eru egg í hreiðrinu eða ungar? Hve mörg/margir?
- Fylgist með fuglunum og hvað þeir gera.
- Fylgist reglulega með þroska unganna.