Almenn færsla, Fólk og náttúra, Veður

Sumarið er komið

Nú er sumarið komið samkvæmt dagatalinu. Gleðilegt sumar!

Ef ekki væri til dagatal og við heyrðum ekkert um það í fjölmiðlum að vor og sumar væri að koma – hvað í umhverfinu myndi segja okkur það?

Hér fylgir ein mynd sem er sterk vísbending. En það er svo langtum fleira. Hugsið og skráið!

Finnið í sameiningu leiðir til að vinna með sumarkomuna.

Nýútsprungnir fíflar - (SH).