Ljóðstafur Jóns úr Vör var veittur sunnudaginn 20.febrúar sl. Gaman er að geta þess að við sama tilefni voru einnig veittar viðurkenningar í ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs. Þar hlaut 1. verðlaun Friðjón Ingi Guðjónsson, 10. bekk Álfhólsskóla fyrir ljóðið Hugmynd. Í öðru sæti var Sóley June Martel, 6.bekk, Salaskóla fyrir ljóðið Þegar maður leggst í mosa og í þriðja sæti var Lukasz Tadeusz Krawczyk, 9. bekk Álfhólsskóla fyrir ljóðið Hjartað.
Ljóðstafinn hlaut Brynja Hjálmsdóttir fyrir ljóðið Þegar dagar aldrei dagar aldrei. Kannski kannist þið við að í vetrarkulda getur húðin þornað og jafnvel sprungið. Það er óþægilegt, en verður yrkisefni Brynju.