Hvar?
Smádýralíf er mjög gróskumikið í Elliðavatni. Þar lifa margir einstaklingar og margar tegundir. Dýrin:
- festa sig við steina í fjörunni,
- lifa í botnseti úti í vatninu
- svífa um eða synda í vatnsbolnum.
Meðal smádýra í fjöru Elliðavatns eru áberandi mýlirfur, vorflugulirfur og vatnabobbar.
Þegar lengra kemur frá landi eru ertuskeljar og smágerðir ormar skyldir ánamöðkum áberandi.
Smásærri dýr, þ.e. illsjáanleg nema í gegnum smásjá, eru einnig í Elliðavatni, má þar nefna vatnaflær, árfætlur, hydrur og skelkrabba.
Efst í ánum, við útfall vatnsins, er mikið magn fæðu og næringar fyrir smádýr. Þar setjast þau líka að í stórum stíl og sía fæðu úr straumnum. Bitmýslirfur eru þar mjög áberandi.
Eftir því sem neðar dregur í árnar og svifögnum fækkar verður minna um bitmýslirfur og aðrar lífverur taka við, s.s. vatnabobbar, vatnamaurar, rykmýslirfur og vorflugulirfur. Þær sía ekki næringu úr rennandi vatninu heldur skrapa þörunga og aðra fæðu af undirlaginu eða eru rándýr.
Skoða má myndir og fræðast enn frekar um þessi smádýr og önnur á Greiningarlyklum um smádýr.
VETTVANGSFERÐ – allir í stígvél!
Fjörusýni:
- Takið smádýrasýni úr fjörunni á nokkrum stöðum við vatnið. Skráið hjá ykkur hvernig fjaran lítur út á sýnatökustaðnum. Farið eins að og vísindamennirnir.
- Takið grjót nálægt vatnsbakkanum á 20-30 cm dýpi, haldið háf undir ef einhverjar lífverur myndu detta. Setjið grugg, gróður og það sem fór í háfinn í ljóst vaskafat eða bakka. Burstið lífverurnar af grjótinu ofan í fatið með mjúkum bursta. Skoðið lífverurnar í fatinu en setjið þær síðan í gott ílát til frekari athugunar í skólastofunni.
- Steinarnir eru ólíkir. Sumir eru hrjúfir og hraunkenndir með holum og glufum, aðrir eru sléttir og máðir. Ætli mismunandi tegundir setjist að á þessu ólíka grjóti? Hvort skyldu fleiri lífverur lifa á hrjúfu grjóti eða því máða? Hvernig er best að athuga þetta?
Svifsýni:
Best er að sá eða sú sem er í vöðlum fari með svifháf út á vatnið og taki svifsýni á nokkrum stöðum. Einnig mætti taka sýni nær landi til samanburðar. Búast má við smásæjum lífverum sem best er að skoða í smásjá, víðsjá eða undir stækkunargleri.
Botnsýni:
Það er oft erfitt að skoða lífverur á vatnsbotninum. Þær vilja hverfa í drulluna. Ef leðjan er látin setjast til og látin eiga sig í nokkurn tíma koma dýrin sér fyrir á ný og verða sjáanleg.
Sýni úr ánum:
Það er áhugavert að skoða lífið í Elliðaánum. Veljið ykkur stein í ánum rétt neðan við vatnið og meðhöndlið hann eins og steinana við strönd vatnsins. Takið einnig stein neðar í ánum til samanburðar.