Vonandi sjáið þið einhvern tímann raunverulega lifandi seli í Kópavogi, eða annars staðar. Hér fyrir neðan eru spurningar sem hjálpa ykkur að skoða þá vel og fylgjast með þeim.
Frekari fróðleikur
-
Vefur Náttúrufræðistofnunar Íslands – skoðið sérstaklega kortasjá.
- Hvað skal gera þegar synt er í sjónum og selir nálgast? – Vísindavefurinn
- Selir eru á válista – lesa um það.
SIÐAREGLUR VIÐ SELASKOÐUN
Verndum selina í náttúrunni, það gerum við með því að:
- virða 100 metra fjarlægðartakmarkanir við seli og alls ekki snerta þá
- hreyfa okkur rólega og hafa lágt – köstum aldrei steinum eða öðru í átt að selunum
- færa okkur frá ef selirnir sýna merki um truflun
- nálgast aldrei kópa sem virðast einmana – urtan er nálæg
- nota ekki dróna því selir eru hræddir við þá.
(Byggt á reglum frá Selasetri Íslands.)
Flakkari
Í október 2014 þvældist kampselur til okkar í Kópavogi. Hér er mynd af honum. Hann lítur út fyrir að vera svolítið þreyttur. Það sem einkennir kampsel eru löng veiðihár. Ekki er vitað til að kampselir kæpi við Ísland, en þeir koma hingað stundum að vetrarlagi. Aðalheimkynnin eru í Norður-Íshafi.
kampar = veiðihár (eða skegg)
Á vettvangi
Fylgist vel með sel sem er úti í sjó eða upp á landi. Eftirfarandi spurningar hjálpa ykkur að gera það markvisst.
-
Hvað er hann að gera?
-
Sér selurinn eða heyrir í ykkur? Hvernig vitið þið það? Prófið að spila fyrir hann á hljóðfæri, t.d. flautu.
-
Sjáið þið hann éta? Hvað ætli selir éti?
-
Flestum finnst selir fallegir. Hvað er fallegt við þá? Hvernig eru þeir á litinn?
- Eru selir með hendur eða fætur?
-
Líklega sjáið þið selinn fara í kaf. Takið tímann hvað hann er lengi og hversu oft hann fer í kaf. Hugsanlega mætti finna meðaltímann. Gerir hann eitthvað annað?
-
Hvað ætli selir sjái neðansjávar?
-
Sjáið þið seli uppi í fjörunni? Lýsið hreyfingum þeirra eða hermið eftir þeim.
-
Ef þið sjáið fleiri en einn sel, takið þið þá eftir einhverjum samskiptum þeirra á milli?
-
Getið þið greint hvort um er að ræða brimla, urtur eða kópa?
KENNARAR / FULLORÐNIR
Að læra um seli
Þrátt fyrir að selir séu ekki mjög algengir við strendur Kópavogs þykir rétt að veita þeim sérstaka athygli þar sem þeir eru í heiti bæjarins. Með því fá nemendur ákveðið veganesti fyrir ferðir sínar um landið, þar sem þeir kynnu að fara á slóðir þar sem eitthvað er um seli. Eins kemur það fyrir af og til að selir þvælist upp að landi í Kópavogi og þá er gott að vera til í slaginn og fylgjast með og rannsaka. Selir sjást oft á skeri í Blikastaðakró neðan Staðarhverfis í Grafarvogi. — Einnig má benda á uppstoppaðan útsel (mikið flikki) á Náttúrufræðistofu Kópavogs.
Í framhaldinu af verkefnum hér að ofan mætti gera eftirfarandi (eftir þroska og stöðu nemenda):
-
Skoða ýtarefni um seli – leggja áherslu á að skoða og ræða um myndir.
-
Leika seli og líkja vel eftir þeim. Fara fyrst yfir hvað selir gera.
-
Teikna selafjölskyldu. Fara fyrst yfir útlitsmun kynja og afkvæma.
-
Búa til lag sem á að laða seli nær landi, með eða án söngtexta.
-
Birta niðurstöður athugana í skýrslu eða sem skjásýningu.
-
Kanna kortasjá sem sýnir selalátur við Ísland á vef Náttúrufræðistofnunar.
-
Útbúa fræðslubækling um seli.
-
Velja einstakling (t.d. ættingja eða vin) og segja honum nákvæmlega frá hvað þið sáuð og hvað þið vitið um seli.
Önnur sjávarspendýr
Á Náttúrufræðistofu Kópavogs er beinagrind háhyrnings. Dýrið lenti í neti úti fyrir Grindavík. Um er að ræða fyrstu beinagrind hvals á Íslandi sem var meðhöndluð til að setja upp á sýningu.