Fylgist vel með sel sem er úti í sjó eða upp á landi. Eftirfarandi spurningar hjálpa ykkur að gera það markvisst.
- 
Hvað er hann að gera? 
- 
Sér selurinn eða heyrir í ykkur? Hvernig vitið þið það? Prófið að spila fyrir hann á hljóðfæri, t.d. flautu. 
- 
Sjáið þið hann éta? Hvað ætli selir éti? 
- 
Flestum finnst selir fallegir. Hvað er fallegt við þá? Hvernig eru þeir á litinn? 
- 
Eru selir með hendur eða fætur? 
- 
Líklega sjáið þið selinn fara í kaf. Takið tímann hvað hann er lengi og hversu oft hann fer í kaf. Hugsanlega mætti finna meðaltímann. Gerir hann eitthvað annað? 
- 
Hvað ætli selirnir sjái neðansjávar? 
- 
Sjáið þið seli uppi í fjörunni? Lýsið hreyfingum þeirra eða hermið eftir þeim! 
- 
Ef þið sjáið fleiri en einn sel, takið þið þá eftir einhverjum samskiptum þeirra á milli? 
- 
Á hverju lifa selir og ætli þeir finni þá fæðu á þeim stað sem þið sjáið þá? 
- 
Taka selirnir eftir ykkur og hvernig vitið þið það? 
- 
Getið þið greint hvort um er að ræða brimla, urtur eða kópa? 
KENNARAR
Í framhaldinu mætti gera eftirfarandi (meta eftir þroska og stöðu nemenda):
- 
Skoða ýtarefni um seli – leggja áherslu á að skoða og ræða um myndir. 
- 
Leika seli og líkja vel eftir þeim. Fara fyrst yfir hvað selir gera! 
- 
Teikna selafjölskyldu. Fara fyrst yfir útlitsmun kynja og afkvæma. 
- 
Búa til lag sem á að laða seli nær landi, með eða án söngtexta. 
- 
Birta niðurstöður athugana í skýrslu eða sem skjásýningu. 
- 
Kanna kortasjá sem sýnir selalátur við Ísland á vef Náttúrufræðistofnunar. 
- 
Útbúa fræðslubækling um seli. 
- 
Velja einstakling og segja honum nákvæmlega frá hvað þið sáuð og hvað þið vitið um seli. 
