Kópur fær sér mjólk - (JÓH).

KÓPAvogur

Afkvæmi sela kallast kópar. Áður fyrr hafa selir líklega kæpt í Kópavogi. Nú er það breytt, enda selir viðkvæmir fyrir ónæði og velja sér ekki stað nálægt byggð til að kæpa. Hér má skoða myndband af urtu sem er að kæpa.

Selir flækjast þó af og til á þessar slóðir. Þeir eru líklega forvitnir og hafa gaman af að fylgjast með íbúum Kópavogs. .

Það er aldrei að vita hvað Kópavogsbúum dettur í hug.

KópaVOGUR

Vogurinn sunnan við Kársnes kallast Kópavogur - (byggt á mynd LMÍ).

Flói, fjörður, vogur, vík, skagi, nes, innnes og tangi eru allt orð sem lýsa lögun strandar.

  • Vitið þið hvað orðin merkja?
  • Skoðið strandlengju Kópavogs og nágrennis á korti.

Áður sveitabær

Við voginn stóð sveitabærinn Kópavogur áður fyrr. Nokkur hús þessa bæjar eru enn uppistandandi og það elsta var byggt á árunum 1903-1904. Það er jafnframt elsta húsið í Kópavogi.

Þegar þorp tók að myndast fékk það líka nafnið Kópavogur.

Lesa um gamla Kópavogsbæinn á vef Minjaverndar.

Sveitabærinn Kópavogur og nýleg fjölbýlishús í baksýn - (SH).

Skjaldarmerki

Í merki Kópavogs má bæði sjá kóp og kirkju. Óvenjulegt er að bygging fái svo stóran sess í ímynd sveitarfélags. Kópavogskirkja þykir meistaraverk. Haldin var samkeppni um merkið árið 1965.  Merkið er eins og skjöldur í laginu.

Teikningarnar af kirkjunni og kópnum eru einfaldar.

KENNARAR / FULLORÐNIR

Um merkið

Höfundar merkis Kópavogs eru Sigurveig Magnúsdóttir arkitekt og Ingvi Magnússon auglýsingateiknari.

Það gæti verið skemmtilegt að skoða merki fleiri bæjarfélaga. Það mætti finna leið til að flokka þau og nota þau jafnvel í stærðfræði (mengjafræði). Möguleg mengi: merki með byggingu – merki með lífveru – merki með landslagi – merki í ákveðnum lit –  annað?

Selurinn og kirkjan í merki Kópavogs er dreginn upp á mjög einfaldan hátt. Kannski gætu nemendur prófað að teikna merki fyrir ímynduð sveitarfélög þar sem lífvera er í stóru hlutverki (dæmi: Refafjörður, Kríubyggð og Hrútahreppur).

Hér er nánar sagt frá merki Kópavogs og sýndar aðrar tillögur sem sendar voru í keppnina.